Vextir af yfirdráttalánum jafngilda útgjöldum til fræðslumála 3. janúar 2007 12:00
Fyrirtæki og einstaklingar greiða jafn mikið í vexti af yfirdráttarlánum á einu ári og ríkið kostar til allra fræðslumála í landinu, þar með er talinn allur kostnaður ríkisins við háskóla og framhaldsskóla landsins. Heimilin ein og sér greiða tvisvar sinnum meira í vexti af yfirdráttarlánum en sem nemur þeirri upphæð sem lækkun matvælaverðs á að skila. Þenslan í íslensku atvinnulífi tekur á sig ýmsar myndir. Ein afleiðing þenslunnar eru hæstu vextir sem þekkjast í vestrænum ríkjum og heimsmet í viðskiptahalla, sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri sagði í fréttum okkar á dögunum, að ekki stæðist til langframa. Fyrirtækin og heimilin í landinu bera kostnaðinn af þenslunni með margvíslegum hætti. Í nóvember voru yfirdráttarlán fyrirtækja og einstaklinga samanlagt 181,4 milljarðar króna. Yfirdráttarvextir eru á bilinu 20-23 prósent en sumir fá afslátt af þeim vegna mikilla viðskipta og svo sveiflast yfirdráttarstaðan innan mánaða. Ef til jöfnuðar er gert ráð fyrir 20 prósenta vöxtum þá eru vextir af þessum yfirdráttarlánum 36,3 milljarðar króna. Það er nánast sama upphæðin og ríkissjóður kostar til fræðslumála í landinu, þ.m.t. framlög til allra háskóla og framhaldsskóla í landinu. Yfirdráttur fyrirtækjanna var í nóvember 111,5 milljarðar. Fyrirtækin borga því 22,3 milljarða í yfirdráttarvexti. Heimilin voru með tæpa 70 milljarða í yfirdráttarlán og greiða því 14 milljarða. Heimilin greiða því tvisvar sinnum meira í yfirdráttarvexti en lækkun matvælaverðs á að færa heimilunum, en ríkisstjórnin áætlar að lækkun virðisaukaskatts á matvæli niður í sjö prósent, kosti ríkissjóð um sjö milljarða króna. Þetta eru aðeins yfirdráttarlánin. Þá á eftir að taka til kostnað við önnur lán. Ef vöxtum af skuldabréfalánum heimila og fyrirtækja væri bætt við þetta dæmi, gætu vaxtagreiðslurnar staðið undir rekstri alls heilbrigðiskerfisins sem kostar ríkissjóð rúma 90 milljarða á ári.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Innlent Fleiri fréttir Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Sjá meira