Viðurkenni að aðstaðan var ekki nógu góð 10. september 2007 15:35 Þórir Hákonarson skilur gremju íþróttafréttamanna og bíður þeim til fundar á morgun.
KSÍ hefur svarað bréfi Samtaka íþróttafréttamanna frá því morgun þar sem farið var fram á tafarlausar úrbætur á aðstöðu þeirra á Laugardalsvelli. Útspil KSÍ er að boða forsvarsmenn samtakanna á fund um hádegisbilið á morgun. Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, viðurkennir í samtali við Vísi að aðstaðan hafi ekki verið góð. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna er þó ekki sáttur og býst við mæta í kraftgalla á næsta landsleik. "Ég skil gremju manna því aðstaðan á þessum leik var ekki nógu góð. Það verður bara að viðurkennast," segir Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, um gagnrýni íþróttafréttamanna á vinnuaðstöðu þeirra á leik Íslands og Spánar á Laugardalsvelli á laugardagskvöldið. Þórir hefur boðað forsvarsmenn samtakanna á sinn fund á morgun. Þar sátu íþróttafréttamennirnir á opnu svæði, norpandi í norðanáttinni og gátu vart skrifað um leikinn vegna krókloppinna handa og drukkinna einstaklinga sem ráfuðu um á meðal íþróttafréttamannanna eins og aðstaða þeirra væri umferðarmiðstöð. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, sem bað um skýr svör í bréfi sínu til KSÍ í morgun, gefur lítið fyrir þetta útspil Þóris og býst við að hann og kollegar hans þurfi að dusta rykið af kraftgöllunum fyrir leik Íslands og Norður Írlands á miðvikudaginn. "Þetta svar KSÍ veldur mér vonbrigðum og svarar á engan hátt okkar spurningum. En við mætum á fundinn og sjáum hvað setur," segir Þorsteinn.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira