Segja formann leikskólaráðs slá ryki í augu fólks 10. september 2007 15:17 Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, og samstarfsfólk hans hjá Kennarasambandinu vilja að sveitarfélögin hysji upp brækurnar í launamálum kennara. MYND/Rósa
Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á sveitarstjórnarmenn að grípa nú þegar til úrræða sem duga til þess að leysa mannekluna á leik- og grunnskólum og greiða þau laun sem nauðynleg eru til að tryggja stöðugleika í skólastarfi. Sakar sambandið formann leikskólaráðs borgarinnar um að slá ryki augu fólks. Í ályktun frá Kennarasambandinu lýsir það yfir miklum áhyggjum af ástandinu þar sem fjölmargar stöður séu ómannaðar og álag á starfsfólki langt umfram það sem eðlilegt megi telja. Bent er á að sveitarstjórnarmenn geti nýtt sér ákvæði kjarasamninga til að greiða hærri laun en lágmark kjarasamninga kveði á um. Þá lýsir stjórn KÍ furðu sinni á ummælum Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns leikskólaráðs Reykjavíkurborgar, um að kenna megi því sem formaðurinn kallar jafnlaunastefnu KÍ um erfiðleika við mönnun skóla. Það sé ekkert í kjarastefnu KÍ sem standi í vegi fyrir því að greiða megi hærri laun en kjarasamningar kveða á um. Lausnin í höndum sveitarfélaganna Hvetur stjórnin borgarstjórn Reykjavíkur og aðrar sveitarstjórnir til þess að koma á stöðugleika í skólastarfi með því að greiða þau laun sem nauðsynleg séu. „Það að slá ryki í augu almennings eins og formaður Leikskólaráðs Reykjavíkurborgar hefur gripið til getur aldrei leitt til farsællar lausnar á þeim vanda sem við blasir. Sá vandi verður aðeins leystur með því að skólarnir verði samkeppnishæfir hvað varðar laun og önnur starfskjör. Lausnin er í höndum rekstraraðilanna - sveitarfélaganna í landinu," segir að endingu í ályktun KÍ.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira