Aðeins fjögur almenningssalerni í miðborginni 10. september 2007 18:32
Aðeins fjögur almenningssalerni eru í miðborg Reykjavíkur og eru tvö þeirra lokuð að hluta eða öllu leyti á næturnar. Lögreglan handtók á þriðja tug manna um helgina fyrir að kasta af sér vatni á almannafæri. Aðgerðir lögreglu hafa vakið mikla athygli og umtal enda finnst mörgum löngu tímabært að tekið sé á subbuskap og ólátum í miðborginni. Eitt umfram annað hefur þó fengið landann til að skeggræða aðgerðirnar en það eru handtökur lögreglu á fólki sem einhverra hluta vegna sér ástæðu til að kasta af sér þvagi þar sem það stendur þá stundina. Eins og segir í þekktu dægurlagi þá má ekki pissa bak við hurð en það má heldur ekki pissa utan í hurð eða húsvegg né annars staðar almannafæri. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók því á þriðja tug manna um helgina fyrir það athæfi. Það hefur vakið fólk til umhugsunar um hvar sé hægt að ganga örna sinna í miðborginni. Á svæðinu sem afmarkast af Frakkastíg og Ingólfstorgi annars vegar og Grettisgötu og Hverfisgötu hins vegar eru þau fjögur, en þetta er það svæði í borginni sem fólk heldur sig mest á um helgar. Fyrst ber að nefna að í bílastæðahúsinu við Traðarkot eru allgóð almenningssalerni, þá er eitt sjálfvirkt salerni á Vegamótastíg, síðan er hið víðfræga Núll í Bankastræti og loks er sjálfvirkt salerni á Ingólfstorgi. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að salernin við Traðarkot eru lokuð á kvöldin og um helgar og Núllið, sem er opið alla virka daga til fimm er aðeins opið á föstudags og laugardagskvöldum frá klukkan 10 til klukkan fjögur á morgnana. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins sagði í samtali við Fréttastofu það þó ekki vera ástæðu þess að fólk kastaði af sér þvagi á götum úti enda hafi sumir þeirra sem handteknir voru um helgina staðið við hlið almenningssalernis þegar þeir voru handteknir fyrir athæfið.
Mest lesið Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Innlent Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Innlent Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Innlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Innlent Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Innlent Strandveiðisjómaður lést Innlent Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Innlent Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði Innlent Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Fleiri fréttir Foreldrar fjölbura fá lengra fæðingarorlof Læknanemar látnir borga hagræðingarbrúsann Náðu með markaðsátaki að lokka til sín fleiri smærri leiðangursskip Skipt um lás hjá Sósíalistaflokknum Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði „Þetta er ekkert líf“ Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Sjá meira