Ragnar klökknaði á Gullna svaninum 30. september 2007 19:56
Ragnar Bragason kvikmyndaleikstjóri klökknaði þegar tilkynnt var á kvikmyndahátíðinni í Kaupmannahöfn í gærkvöldi að mynd hans Börn hefði verið valin besta mynd hátíðarinnar og hlotið Gullna svaninn. Copenhagen Film Festival er alþjóðleg kvikmyndahátíð í Kaupmannahöfn sem lauk með galakvöldi í gær. Eftir að hafa kynnt myndina var Ragnar á leið heim á föstudaginn en þá var því hvíslað að honum að hann skyldi endilega hinkra. Ragnar átti hins vegar ekki von á því að myndin fengi aðalverðlaun hátíðarinnar. Ragnar segir dómnefndina hafa sérstaklega talað um hvernig skinið hefði í gegnum myndina að hópurinn allur hefði unnið hana af heilum hug. Börn - og seinni myndin Foreldrar - verða sýndar í almennum bíóhúsum í Danmörku á næstunni og Ragnar segir svaninn gyllta áreiðanlega eftir að hjálpa til. Ótal kvikmyndahátíðir eru haldnar á ári hverju, og Börn hefur farið á þær nokkrar og gengið vel. Raunar mun hún auk þess vera í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna ásamt Mýrinni. Hátíðin í Kaupmannahöfn hefur síðustu tvö ár verið talin ein af fimmtíu mikilvægustu kvikmyndahátíðum heims.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Guðbjörg með flest atkvæði og flestir vilja sameinast Stykkishólmi Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldrananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Sjá meira