Niðurgreiðslur vegna dagforeldra hækka 2. janúar 2007 12:45
Niðurgreiðsla Reykjavíkurborgar vegna barna hjá dagforeldrum hækkar um rúmar tíu þúsund krónur nú um áramótin. Á sama tíma eru málefni grunnskóla og leikskóla aðskilin hjá borginni. Framlag borgarinnar til dagforeldra hækkaði um 32 prósent frá og með áramótum sem þýðir að barn hjóna sem er í átta tíma vistun hjá dagforeldri fær niðurgreiðslu upp á 31.880 krónur á mánuði en fékk áður 21.600 krónur. Í tilkynningu frá nýju leikskólasviði Reykjavíkurborgar segir að nýleg könnun Félagsvísindastofnunar sýni að 90% þeirra foreldra sem eiga börn hjá dagforeldrum séu ánægðir með þjónustuna. Lítill stuðningur hafi hins vegar verið við þetta fyrirkomulag og því hafi dagforeldrum fækkað um 37% á síðustu sex árum sem valdið hefur foreldrum verulegum vandræðum. Hækkun niðurgreiðslunnar mun kosta um 85 milljónir á ári. Veruleg andstaða var við það í haust að skipta menntaráði borgarinnar upp í tvö ráð og töldu Félag leikskólakennara og Kennarafélag Reykjavíkur það stórt skref aftur á bak. Nú hefur það skref verið stigið til fulls því í dag tók til starfa nýtt Leikskólasvið Reykjavíkurborgar og er þá aðskilið frá málefnum grunnskólans sem verða á Menntasviði. Að sögn sviðsstjóra nýja leikskólasviðsins, Ragnhildar Erlu Bjarnadóttur, breytir hin nýja skipting engu fyrir foreldra, sem áfram munu sækja sínar upplýsingar um úthlutun leikskólaplássa í þjónustumiðstöðvarnar í hverfum borgarinnar. Í Garðabæ hækkar framlag bæjarins til dagforeldra um sex þúsund krónur og fer upp í röskar 46 þúsund krónur fyrir átta tíma vistun. Í Hafnarfirði hafa engar breytingar verið ákveðnar á niðurgreiðslu til dagforeldra en hún er núna tæpar 30 þúsund krónur á mánuði fyrir 8 tíma vistun. Í Kópavogi verða ekki breytingar á niðurgreiðslunni en þar er hún 30 þúsund krónur fyrir 8 tímana.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Fleiri fréttir Töluverð umferð á Þingvallasvæðinu Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Sjá meira