SPRON fyrirhugar breytingar í hlutafélag 17. júlí 2007 18:44 Núna eru 1.340 stofnfjáreigendur í SPRON. MYND/PJ
Stjórn SPRON samþykkti í dag að undirbúa breytingu sparisjóðsins í hlutafélag og óska eftir skráningu félagsins í Norrænu kauphöllina á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPRON. Breyting sparisjóðsins í hlutafélag verður háð samþykki stofnfjáreigenda og Fjármálaeftirlitsins. Fram kemur í tilkynningu frá SPRON að samkvæmt lögum verður allt það hlutafé sem ekki rennur til stofnfjáreigenda að verða eign sjálfseignarstofnunar sem sett verður á stofn við breytinguna. Ráðgjafarfyrirtækið Capacent hefur metið markaðsvirði SPRON og gagngjalds fyrir stofnfjárhluti. Samkvæmt því mati mun eignarhluti stofnfjáreigenda nema 85 prósent af hlutafé og eign sjálfseignarstofnunarinnar verða 15 prósent. Eigið fé sjálfseignarstofnunarinnar mun því verða um 9 milljarðar króna. Núna eru 1.340 stofnfjáreigendur í SPRON með um 20 milljarða krónur í stofnfé. Guðmundur Hauksson, Sparisjóðsstjóri, sagði í samtali við Vísi að breytingar væru gerðar til að takast á við breyttar aðstæður á fjármálamarkaði. „Fjármagnsmarkaðurinn hefur breyst mjög hratt á undanförnum árum og við stöndum ekki lengur jafnfætis viðskiptabönkunum. Löggjöfin um stofnfé er óskýrari en löggjöfin um hlutafé. Ef fyrirtækið ætlar að sækjast eftir fjármagni frá almenningi hentar hlutafélagsformið betur." Tillaga stjórnar SPRON verður lögð fyrir stofnfjáreigendur í næsta mánuði. Verði hún samþykkt mun Fjármálaeftirlitið þurfa taka afstöðu til málsins. Guðmundur segist ekki eiga von á öðru en að Fjármálaeftirlitið muni samþykkja breytinguna.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Innlent Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Innlent Fleiri fréttir Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Sjá meira