Federline segir Britney vera drykkfellda lesbíu 20. ágúst 2007 10:46 MYND/Getty
Britney Spears á það á hættu að missa forræðið yfir drengjunum sínum tveimur til fyrrverandi eiginmanns síns Kevins Federline sem segir hana vera drykkfellda lesbíu. Federline hefur safnað saman fjölda upplýsinga um siðspillta hegðun söngkonunnar sem hann telur skaðlega sonum þeirra, þeim Sean Preston, tæplega tveggja ára og Jayden James, ellefu mánaða. Federline hefur einnig fengið til liðs við sig fjölda vitna sem tilbúin eru að staðfesta slæma uppeldishæfni söngkonunnar. Lykilvitni er súludansari sem átti í lesbísku sambandi við Britney í Kaupmannahöfn árið 2004. Auk þess hefur móðir hennar snúist á sveif með Federline og styður hann í forræðisdeilunni. Málið mun fara fyrir dóm 17. september næstkomandi og meðal þess sem Federline telur til slæmra uppeldisskilyrða eru lesbískir tilburðir söngkonunnar sem sífellt skjóta upp kollinum. Eins nefnir hann áfengisneyslu og stöðugt skemmtanahald auk þess sem hann segir Britney vera hræðilega móður sem fari með börnin eins og leikföng. Meðal vitna sem Federline hefur fengið til liðs við sig eru fyrrum lífverðir og barnfóstra söngkonunnar sem lýsa því að hún drekki sig fulla fyrir framan drengina, öskri á þá, láti þá vera með óhreinar bleyjur og gefi þeim kaffi og gos í pelana sína. Federline hefur einnig fengið Shannnon Funk, fyrrverandi aðstoðarkonu Britneyjar, til að tjá sig um samband sitt við söngkonuna en þær sáust í rómantískum atlotum í sundlaug fyrir skömmu. Í stað þess að hafa hægt um sig í ljósi yfirvofandi málaferla þá heldur Britney, í óþökk lögfræðinga sinna, ótrauð áfram að stunda skemmtanalífið og sást síðast til hennar undir áhrifum áfengis í Los Angeles í síðustu viku.
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira