Vonbrigði að ekki var hægt að mynda vinstristjórn Höskuldur Kári Schram skrifar 18. maí 2007 14:16 MYND/AB
Samfylkingin virðist vera tilbúin að fórna mörgum stefnumálum til að ná að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. Hann segir það vera vonbrigði að ekki náðist að mynda vinstristjórn og óttast að sú stjórn sem er í myndun verði of hægrisinnuð. „Það var augljóslega búið að handsala allt fyrirfram og fundur Geirs H. Haarde með forsetanum í morgun staðfesti það," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, í samtali við Vísi. „Það er mjög einkennilegt að sjá að Geir geti farið til Bessastaða. Sagt af sér og fengið umboðið strax aftur." Steingrímur segir óttast að stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks komi til með að verða of hægrisinnuð. „Þetta verður alltof hægrisinnuð stjórn. Vissulega eigum við eftir sjá hvar áherslurnar koma til með að liggja en það hefur þegar verið gefið í skyn að Samfylkingin hafi boðað eftirgjöf á ýmsum sviðum til þess að ná þessu betur saman. Samfylkingin virðist hafa lagt ofurkapp á að komast inn í þessa stjórn." Þá segir Steingrímur tilboð Vinstri grænna til Samfylkingarinnar um að ganga til viðræðna um stjórnarmyndun ásamt Framsóknarflokknum enn standa. Hann segist þó ekki hafa trú á öðru en að Ingibjörg og Geir gangi frá samkomulagi sín á milli. „Við vorum tilbúnir til að mæla með því að Ingibjörg fengi forsætisráðherrastólinn. Tilboðið stendur enn og við höfum engu lokað. Hins vegar bera Geir og Ingibjörg sig þannig að það eru mestar líkur á því að þau komist að samkomulagi."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira