Innlent

Sviknir um tugi milljóna í bílaviðskiptum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bílasali á Virginia Beach var ákærður síðasta miðvikudag, grunaður um að hafa svikið hátt í 40 milljónir af tveimur íslenskum bílainnflytjendum. Annar íslenski aðilinn gerði samning um kaup á 11 bifreiðum en þegar skip, sem flytja átti bílana, lagðist að bryggju í apríl síðastliðnum voru engir bílanna um borð. Þar töpuðust 20 milljónir króna og var haft samband við Bandarísku alríkislögregluna. Annar Íslendingur var einnig svikinn af sama manni fyrir álíka háa upphæð. Bandaríski bílasalinn hefur verið í bílaviðskiptum við Íslendinga árum saman en það var fyrst í vetur sem varan skilaði sér ekki. Hann neitar sök.

 

 

Mennirnir sem sviknir voru segja að Bandaríkjamaðurinn hafi verið í viðskiptum við fjölmarga Íslendinga á undanförnum árum og hafi selt til landsins hundruði bíla. Hann hafi staðið við gerða samninga þangað til í september eða október í fyrra. Þá hafi sendingar á bílunum farið að dragast. Fyrst í stað hafi þá ekki grunað neitt vegna þess að pappírsvinna í tengslum við bílaviðskipti geti oft dregið afhendingu bílanna. Þegar liðið var fram í júní hafi þeir hins vegar verið orðnir fullvissir um það að bílarnir myndu ekki skila sér og því hafi þeir ákveðið að ákæra.

 

 

Báðir aðilarnir sem talað var við segja að enginn viðskiptavinur þeirra á Íslandi hafi orðið fyrir fjárhagstjóni vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×