Innlent

Vegagerðin rukkar fyrir ónýta vegi

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Fjárflutningavagninn var með leyfir fyrir að flytja 300 kindur en var með 230 um borð þegar slysið varð.
Fjárflutningavagninn var með leyfir fyrir að flytja 300 kindur en var með 230 um borð þegar slysið varð.

Í gær drápust 85 kindur þegar sérútbúinn fjárflutningavagn með 230 kindum valt þegar vegkantur gaf sig. Fjórir bílstjórar Olíudreifingar hafa lent í því sama. Fyrirtækið fékk að auki senda reikninga fyrir skemmdum sem urðu á vegunum.

Tveir bílstjóra Olíudreifingar voru reyndustu bílstjórar fyrirtækisins. Þeir voru auk þess langt frá vegkantinum þegar hann gaf sig og innan allra leyfilegra marka.

Þetta segir Hörður Gunnarsson framkvæmdastjóri Olíudreifingar sem varð afar undrandi þegar reikningar bárust svo frá Vegagerðinni fyrir viðgerð á vegunum.

„Mér fannst það skelfilega ósanngjarnt og vildi leita leiða hvort þeir bæru ekki einhverja skaðabótaskyldu gagnvart því tjóni sem við urðum fyrir."

Það hafi hins vegar ekki reynst raunin. Reikningarnir skiptu hundruð þúsundum króna en hafa ekki verið greiddir af Olíudreifingu.

Eigendur ábyrgir

Stefán Erlendsson forstöðumaður lögfræðisviðs Vegagerðarinnar kannast ekki við þessi tilteknu tilfelli. Hann segir almennu regluna þá að eigandi ökutækis sé ábyrgur fyrir því tjóni sem hlýst af skemmdum. Undantekning sé frá því ef merkingar hafi ekki verið fullnægjandi.

Hörður segir verulegt átak þurfa í vegamálum og mun stærri hluta þeirra skattstofna sem innheimtir eru fyrir vegamál þurfi að renna til vegagerðar. Olíugjald og bensíngjald skili sér sem dæmi aðeins að hluta til vegagerðar.

„Alverst er þegar Vegagerðin beinir umferð inn á vegi sem geta ekki tekið við þunganum. Þetta er ábyrgðarhluti Vegagerðarinnar."

Stefán segir stuðst við reglur frá Evrópu sem búi við mun öflugra vegakerfi en við.

Fjárframlög í engu samræmi við aukna umferð

Signý Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs Samtaka verslunar og þjónustu segir ástand á vegum víða um land skelfilegt. Umferðin hafi fjórfaldast á 20 árum og fjárframlög séu í engu samræmi við það. „Það vantar heildstæða áætlun um að laga vegina sem nú eru í notkun til þess að þeir geti borið þessa umferð, meðal annars umferð flutningabíla."

Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar segir eitt aðalverkefni Vegagerðarinnar á næstu árum að breikka og styrkja vegi víða um land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×