Vegagerðin rukkar fyrir ónýta vegi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 26. október 2007 14:06 Fjárflutningavagninn var með leyfir fyrir að flytja 300 kindur en var með 230 um borð þegar slysið varð.
Í gær drápust 85 kindur þegar sérútbúinn fjárflutningavagn með 230 kindum valt þegar vegkantur gaf sig. Fjórir bílstjórar Olíudreifingar hafa lent í því sama. Fyrirtækið fékk að auki senda reikninga fyrir skemmdum sem urðu á vegunum. Tveir bílstjóra Olíudreifingar voru reyndustu bílstjórar fyrirtækisins. Þeir voru auk þess langt frá vegkantinum þegar hann gaf sig og innan allra leyfilegra marka. Þetta segir Hörður Gunnarsson framkvæmdastjóri Olíudreifingar sem varð afar undrandi þegar reikningar bárust svo frá Vegagerðinni fyrir viðgerð á vegunum. „Mér fannst það skelfilega ósanngjarnt og vildi leita leiða hvort þeir bæru ekki einhverja skaðabótaskyldu gagnvart því tjóni sem við urðum fyrir." Það hafi hins vegar ekki reynst raunin. Reikningarnir skiptu hundruð þúsundum króna en hafa ekki verið greiddir af Olíudreifingu.Eigendur ábyrgirStefán Erlendsson forstöðumaður lögfræðisviðs Vegagerðarinnar kannast ekki við þessi tilteknu tilfelli. Hann segir almennu regluna þá að eigandi ökutækis sé ábyrgur fyrir því tjóni sem hlýst af skemmdum. Undantekning sé frá því ef merkingar hafi ekki verið fullnægjandi.Hörður segir verulegt átak þurfa í vegamálum og mun stærri hluta þeirra skattstofna sem innheimtir eru fyrir vegamál þurfi að renna til vegagerðar. Olíugjald og bensíngjald skili sér sem dæmi aðeins að hluta til vegagerðar.„Alverst er þegar Vegagerðin beinir umferð inn á vegi sem geta ekki tekið við þunganum. Þetta er ábyrgðarhluti Vegagerðarinnar."Stefán segir stuðst við reglur frá Evrópu sem búi við mun öflugra vegakerfi en við.Fjárframlög í engu samræmi við aukna umferðSigný Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs Samtaka verslunar og þjónustu segir ástand á vegum víða um land skelfilegt. Umferðin hafi fjórfaldast á 20 árum og fjárframlög séu í engu samræmi við það. „Það vantar heildstæða áætlun um að laga vegina sem nú eru í notkun til þess að þeir geti borið þessa umferð, meðal annars umferð flutningabíla."Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri Vegagerðarinnar segir eitt aðalverkefni Vegagerðarinnar á næstu árum að breikka og styrkja vegi víða um land.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Fleiri fréttir Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Sjá meira