Segir Pólverjana boðaða á fundinn á fölskum forsendum Breki Logason skrifar 21. nóvember 2007 13:11 Benedikt Sveinsson framkvæmdarstjóri Stál í Stál ásamt starfsmönnum sínum. „
Það voru engin læti af minni hálfu. Við vorum bara að árétta það að starfsmenn okkar væru ekki í stéttarfélaginu,“segir Benedikt Sveinsson framkvæmdastjóri Stál í stál en honum var hent út af fundi sem félag vélstjóra og málmtæknimanna hélt með pólskum starfsmönnum fyrirtækisins í gær. 12 Pólverjar vinna hjá Stál í stál en af þeim eru aðeins fjórir stálsmiðir. Það má segja að það sé stál í stál á milli fyrirtækisins og VM. En fyrirtækið vill meina að 12 Pólverjar sem vinna hjá því séu ekki félagar í VM heldur í Fit, sem er félag Iðn- og tæknigreina. „Það var ekki tekið í öxlina á mér en menn voru pirraðir og ég skyldi þetta ekki alveg. Við komum bara þarna inn til þess ná sambandi við okkar menn," segir Benedikt sem vildi ekki svara því hversvegna honum var hent útaf fundinum. „Ég hef ekki tíma í þetta," sagði Benedikt og skellti á blaðamann Vísis. Hann vísaði hinsvegar á Arngrím Kristjánsson trúnaðarmann starfsmanna fyrirtækisins sem segir að mennirnir hafi verið boðaðir á fundinn á fölskum forsendum. „Þeir eru ekki í félaginu enda var tekin ákvörðun fyrir nokkru um að enginn af okkar starfsmönnum sé í VM, vegna þess að hér eru ekki bara stálsmiðir. Við erum á miklu breiðara sviði," segir Argrímur sem hefur engar skýringar á því hversvegna Pólverjarnir voru boðaðir á fundinn. Hann bendir einnig á að aðeins fjórir stálsmiðir vinni hjá fyrirtækinu, hinir séu húsasmiðir og eigi þarafleiðandi ekki að vera í VM. „Mig grunar að þeir séu að reyna að ná þeim til sín. Þessir menn hafa aldrei verið í félaginu enda get ég ekki treyst þessum mönnum til þess að semja um laun fyrir mig enda geta þeir ekki talað við vinnuveitendur á málefnanlegum nótum." Arngrímur heldur því fram að Pólverjarnir hafi ekki vitað hvaða stéttarfélag var að boða þá á fund en maður frá VM mætti á vinnustaðinn á mánudaginn. „Það kom maður hingað og við vísuðum honum út þar sem það starfar enginn félagsmaður þeirra hjá okkur. Hann var með hroka og ruddist hér inn þrátt fyrir beiðnir um að vera úti," segir Arngrímur en Örn Friðriksson hjá VM sagði á Vísi fyrr í dag að mennirnir hefðu verið félagsmenn VM fyrir skömmu. Í pistli sem Örn skrifar á heimasíðu VM kemur fram að að tilurð þess að Benedikt og Arngrímur mættu á fundinn í gær megi rekja til þess að Vinnumálastofnun óskaði eftir því fyrir nokkru að VM kannaði tiltekin atriði í ráðningarsamningum pólskra starfsmanna fyrirtækisins. Í ljós kom að ákvæði þess samnings um yfirvinnuálag var ekki í samræmi við kjarasamning VM. Arngrímur segir að þetta hafi verið leiðrétt. „Við erum með samninga sem endurskoðendur hafa farið yfir og Vinnumálastofnun hefur samþykkt. Þeir samningar voru gerðir við FIT en allir okkar samningar eru löglegir." Arngrímur segir alla starfsmenn fyrirtækisins vera vini og vilji starfa saman. Málið sé á misskilningi byggt. Þeim hafi verið vísað á dyr af fundinum í gær með hroka og leiðindum. „Við fengum aldrei tækifæri til þess að ræða við okkar menn en gerðum það eftir fundinn og bentum þeim á að þeir væru ekki í þessu félagi. Það er sjálfsagt að menn fari yfir sín réttindi og kanni sín mál, en það þarf að vera hjá réttu félagi."
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Erlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Fleiri fréttir „Það er orrustan um Ísland“ „Þetta er alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Sjá meira