Opinberum sjóðum ekki treystandi Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. nóvember 2007 14:57 Björgólfur treystir Þórhalli til að efla innlenda dagskrárgerð.
Ríkisútvarpið birti samning sinn við Ólafsfell, félag í eigu Björgólfs Guðmundssonar, í gær. Eins og kunnugt er hafa þessir aðilar samið um að verja allt að 300 milljónum sameiginlega í framleiðslu á innlendu dagskrárefni næstu þrjú árin. Í samningnum kemur meðal annars fram að Ólafsfell fær forgang á greiðslu af hagnaði á sameiginlegum verkefnum með Ríkisútvarpinu sem nemur 15% af hlutdeild þeirra í viðkomandi verkefni. „Ríkisútvarpið fær sýningarréttinn af þeim verkefnum sem framleidd eru og mun þannig hagnast á samningnum. Okkur fannst því sanngjarnt að gera kröfu um 15% hlutdeild umfram það sem RÚV fær í hagnaði á sölu efnisins til útlanda ef hann verður einhver," segir Ásgeir Friðgeirsson, fjölmiðlafulltrúi Björgólfs. Hann leggur þó áherslu á það að stærsta hluta hagnaðarins verði varið í að framleiða enn meira dagskrárefni. Ásgeir segir að Björgólfur hafi áhuga á að styrkja menningarstarfsemi en hann hafi hins vegar ekki þekkingu eða mannafla til þess að velja það dagskrárefni sem eigi að framleiða fyrir sjónvarp. „Ef hann hefði ætlað sér að stofna sérstakan sjóð um þetta verkefni hefði það kostað að minnsta kosti einn starfsmann í fulla vinnu og minna fé farið í verkefnin sjálf," segir Ásgeir. Í samningnum kemur fram að verkefnisstjórn skipuð fulltrúa frá Ólafsfelli og dagskrárstjóra Sjónvarpsins velji þau verkefni sem framleidd eru. „RÚV mun auðvitað velja verkefnin en fulltrúi Ólafsfells mun bara gæta þess að valið ráðist af málefnalegum forsendum," segir Ásgeir. Hann segir jafnframt að engar sérstakar ástæður hafi þótt til að treysta þeim opinberu sjóðum sem þegar séu til. Þórhalli Gunnarssyni, dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, sé hins vegar treystandi. Ásgeir segir að Björgólfur vilji gjarnan styðja fólk í að hrinda góðum hugmyndum í framkvæmd. Hann hafi hins vegar ekki frumkvæðið að því að verkefnin sem hann styrki verði til. „Þegar Þórhallur kom svo að máli við okkur og reifaði þessa hugmynd var hún að sjálfsögðu skoðuð. Það hefði verð alveg jafn vel tekið í hana ef hún hefði komið frá Ara Edwald forstjóra 365," segir Ásgeir. Hann bendir jafnframt á það að Saga Film, fyrirtæki í eigu 365 hf., muni framleiða fyrsta verkefnið sem RÚV og Ólafsfell styrkja.
Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Fleiri fréttir Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Fara fram á gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Sjá meira