Íslendingum meinað að koma inn í Bandaríkin vegna gamalla dóma 5. október 2007 10:35 Álfheiður Ingadóttir, þingmaður. MYND/365
Sakaskrá margra Íslendinga virðist með einhverjum hætti hafa ratað í hendur bandarískra stjórnvalda að sögn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna. Dæmi eru um að íslenskum ríkisborgurum sé meinað að koma inn í Bandaríkin vegna áratuga gamalla dóma að hennar sögn. Álfheiður hefur nú lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra hvort íslensk stjórnvöld hafi veitt bandarískum stjórnvöldum liðsinni um öflun upplýsinga vegna refsidóma sem fallið hafa í málum íslenskra ríkisborgara. Fyrirspurn Álfheiðar nær til síðastliðinna fimmtán ára. „Ég veit til þess að fólki hefur verið meinað að koma inn í Bandaríkin vegna gamalla dóma," sagði Álfheiður í samtali við Vísi. „Þetta eru gamlir dómar sem ekki eru aðgengilegir og ekki hægt að finna á Netinu. Því velti ég því fyrir mér hvernig þessar upplýsingar hafa ratað í hendur Bandaríkjamanna." Álfheiður segir það vera alvarlegt mál ef í ljós kemur að íslensk stjórnvöld hafi gefið slíkar upplýsingar til Bandaríkjanna. „Það væri einnig alvarlegt ef gömul mál á sakaskrá sem ættu að vera orðin löngu fyrnd eru allt í einu orðin ástæða þess að menn fá ekki að fara inn í landið."
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Innlent Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Sjá meira