Innlent

Stálu hundruðum áfengisflaskna sem átti að farga

Þrír karlar og ein kona voru Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir umfangsmikinn áfengisþjófnað sem stóð á árunum 2002-2005. Tollvörður sem einnig var ákærður í málinu var hins vegar sýknaður fyrir aðild að því.

Alls var fólkið ákært fyrir að stela yfir 800 bjórdósum, um 200 vínflöskum og hátt í 100 flöskum af ýmiss konar sterku víni á tímabilinu. Fólkið var starfsfólk Jóna Transport og Samskipa og stal áfenginu af brettum hjá Samskipum sem ákveðið hafði verið að senda til förgunar. Áfengið fannst á heimili ákærðu við leit lögreglu eftir að hún komst á snoðir um málið síðla árs 2005.

Þáttur tveggja manna var talinn meiri en þriðja mannsins og konunnar. Tollvörðurinn var hins vegar ákærður fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína með því að hafa veitt samþykki sitt fyrir þjófnaðinum þegar lögregla greip tvo fyrstnefndu mennina. Lögregla fann 31 flösku heima hjá tollverðinum en hanns sagðist hafa fengið þær á löglegan hátt. Sagðist hann ekki hafa átt nokkra aðild að málinu.

Fjórmenningarnir sem sakfelldir voru játuðu allir að hafa tekið áfengið en neituðu því að um væri að ræða þjófnað þar sem til hefði staðið að farga áfenginu. Dómurinn komst hins vegar að því að þar sem áfengið hefði enn verið í vörslu Samskipa væri það enn í eigu innflytjendanna sem óskað hefðu eftir að því yrði fargað. Þá yrði að telja að áfengið hefði fjárgildi því það hefði getað nýst ákærðu til eigin neysla eða sölu.

Tveir mannanna voru dæmdir í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi en þriðji maðurinn og konan í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, öll til tveggja ára. Þá var allt áfengið gert upptækt með dómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×