Þýfi Litháana átti að nota til að fjármagna fíkniefnasölu 5. október 2007 18:03
Þýfi fimmtán Litháa, sem nú hafa verið handteknir fyrir umfangsmikinn búðaþjófnað, var að öllum líkindum gjaldmiðill í fíkniefnaviðskiptum og áttu fíkniefnin að fara á markað hér. Öryggisvörður varð fyrir líkamsárás þegar hann reyndi að stöðva tvo þeirra við iðju þeirra. Kona sem starfar sem öryggisvörður hjá Högum varð fyrir kröftugu olnbogaskoti og þeyttist í gólfið þegar hún reyndi að stöðva tvo meinta búðarþjófa í einni af verslunum 10-11 í Reykjavík. Mennirnir eru taldir tilheyra hópi þeirra Litháa sem hafa verið handteknir vegna gruns um stórfellda þjófnaði í verslunum í Reykjavík. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær fimmtánda Litháann sem talinn er tengjast þessum umfangsmikla hring. Sá var handtekinn eftir húsleit lögreglu í austurbænum en þar lagði lögregla hald á þýfi. Forvígismenn Haga urðu með þeim fyrstu til að benda lögreglu á stórfellda þjófnaði sem stundaðir eru af erlendum einstaklingum hér á landi. Samkvæmt upplýsingum sem Stöð 2 aflaði sér jókst búðahnupl verulega í verslunum hér á landi um mitt ár 2005. Það ár varð 70 prósent aukning á þjófnuðum þar sem útlendingar áttu í hlut. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru fíkniefnaneytendur stórtækasti hópur þeirra Íslendinga sem leggja stund á búðahnupl. Yfirmaður öryggismála hjá verslun í Reykjavík segir að fíklar séu jafnvel sendir með innkaupalista þar sem er búið að merkja við í bæklingum verslana hvað fíkniefnasalarnir vilja fá í skiptum fyrir fíkniefnin. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Stöðvar 2 var áformað að þýfið sem var í fórum Litháana hafi átt að nota sem gjaldmiðil í viðskiptum með fíkniefni og þau fíkniefni hafi átt að fara á markað hér á landi. Sömu heimildir herma að Litháar séu nú að ná undirtökunum í fíkniefnaheiminum hér á landi.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira