Innlent

Ákærður fyrir rán með kveikjarabyssu

Þrjátíu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir að ræna 10/11 verslun. Maðurinn fór inn í verslunina sem staðsett er við Barónstíg í Reykjavík vopnaður kveikjarabyssu, sem leit út fyrir að vera skotvopn. Hann og ógnaði þar tveimur starfsstúlkum verslunarinnar með kveikjarabyssunni og skipaði þeim að afhenda sér peninga. Maðurinn hafði með sér rúmar 330 þúsund krónur í reiðufé. Málið gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×