Hálf milljón í reiðufé fannst við húsleit 5. október 2007 16:50 MYND/Völundur
Hálf milljón króna í reiðufé var meðal þess sem lögreglan fann í húsleit í borginni í tengslum við handtöku á litháísku þjófagengi fyrr í vikunni. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurðum yfir þremur mannanna sem staðfestir voru í Hæstarétti í dag. Alls voru sjö manns úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag og kærðu þrír þeirra úrskurðina til Hæstaréttar sem staðfesti þá í dag. Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að mennirnir hafi búið í íbúðinni þar sem húsleitin var gerð. Þar var lagt hald á marga muni, þar á meðal fatnað, snyrtivöru og ýmsan tæknibúnað auk peninganna. Telur lögregla að munirnir séu þýfi og kveðst hafa tengt hluta munanna við þjófnaði sem tilkynntir hafi verið í verslunum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu mánuðum. Þá kemur fram í úrskurði Hæstaréttar að enginn mannanna hafi játað á sig þjófnað en þeim hefur verið haldið aðskildum til þess að þeir geti ekki samræmt frásagnir sínar. Sjö aðrir Litháar voru handteknir í annarri íbúð í bænum vegna málsins og voru tveir þeirra úrskurðaðir í gæsluvarðhald en fjórir í farbann. Fimmtándi maðurinn hefur verið yfirheyrður í dag en ekki liggur fyrir hvort farið hafi verið fram á gæsluvarðhald yfir honum.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira