Leitin að Þjóðverjunum er ein umfangsmesta leit björgunarmanna hér á landi 27. ágúst 2007 18:40
Leitin að Þjóðverjunum tveimur á Öræfajökli er með þeim umfangsmeiri sem farið hafa fram hér á landi. Mikill tækjabúnaður var notaður við leitina og álag á leitarmenn var óvenju mikið. Á þriðja hundrað manns kom að leitinni og vann meðal annars lögregla í Þýskalandi að rannsókn málsins í félagi við lögreglu hér á landi sem vann úr vísbendingum. Eftir að tjöld Þjóðverjanna fundust voru kallaðir út allir þaulvanir fjallamenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það lætur nærri að klifur þeirra hafi jafnast á við það sem fjallamenn reyna sem ganga á Mount Everest en þeir fóru fjórum sinnum á hæsta tind landsins. Samhæfingarstöð í Skógarhlíð var virkjuð að hluta en þar voru sex manns að störfum við mjög umfangsmikla rannsóknarvinnu, öflun upplýsinga og skipulag. Á leitarsvæðinu lögðu margir mjög mikið á sig við að leita að Þjóðverjunum tveimur. Ein tankbifreið var á staðnum til að sjá farartækjum fyrir eldsneyti. Tvö sexhjól voru notuð ásamt þremur fjórhjólum. Leitarmenn höfðu sex vélsleða og einn stjórnstöðvarbíll var á plani framan við hótel Skaftafell. Leitarmenn höfðu tvö gríðarlega stór uppblásanleg tjöld sem voru notuð sem bækistöðvar fyrir björgunarsveitamenn en 50 bifreiðar komu við sögu í leitinni. Við leitina var stuðst við tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar sem fluttu menn um leitarsvæðið auk þess sem áhafnir þeirra leituðu úr lofti við einhverjar þær erfiðustu aðstæður sem þekkjast hérlendis. Fokker flugvél Gæslunnar var meðal annars notuð í flutningum á mannafla austur, bæði frá Reykjavík og Akureyri. Á svæðinu var einn sporleitarhundur sem vann í félagi við þrjá svæðisleitarhunda sem eru einnig þjálfaðir til leitar í snjóflóðum. Björgunarmenn lögðu á sig meira en fimm þúsund klukkustundir við vinnu en þeir hvíldust í 25 tjöldum og fengu rjúkandi mat frá konum úr slysavarnardeildinni Framtíðinni á Höfn. Leitarmenn náðu rétt að halla sér eftir erfiði dagsins í 25 tjöldum á meðan þeir biðu dagrenningar. Að baki hverri stund í útkalli björgunarsveita liggja um 12 stundir í annarri vinnu, svo sem við þjálfun, viðhald tækja og fjáröflun. Að auki eru björgunarsveitarmenn með mikinn eigin búnað, sérhæfðan útivistarfatnað, ísklifurbúnað, broddar, ísaxir og öryggistæki. Heildarkostnaður við leitina liggur ekki fyrir en nærri lætur að ef sá tími sem farið hefur í leitina yrði reikningsfærður væri 180 milljónir ekki fráleit tala.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri fréttir Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Sjá meira