Tilraunadýr í einkavæðingu 12. júlí 2007 19:13
Búið er að semja um eignaskiptingu Hitaveitu Suðurnesja og mun Geysir Green Energy eignast þriðjung. Minnihlutinn í Reykjanesbæ fordæmir að Suðurnesjamenn séu gerðir að tilraunadýrum í einkavæðingu orkufyrirtækja og telur að bæjarfélagið sé að verða ofurselt Glitni, kjölfestueiganda Geysis Green. Forkaupsréttarákvæði eigenda Hitaveitu Suðurnesja setti kapphlaupið um fyrirtækið í pattstöðu sem leiddi til þess að menn settust í bakherbergið og sömdu um skiptinu. Uppúr því kemur samkomulag um að Reykjanesbær muni í framtíðinni eiga 35% í Hitaveitunni, Geysir Green Energy 32% og Orkuveita Reykajvíkur sama hlut. Hlutur Orkuveitunnar er háður því að Hafnarfjörður samþykki að selja þangað sinn hlut í fyrirtækinu. Reykjanesbær á 40% í Hitaveitunni og selur því Geysi 5% hlut á tvo og hálfan milljarð króna. Þessi viðskipti leggjast illa í minnihlutann í Reykjanesbæ, ekki síst fyrir þau nánu tengls sem eru á milli bæjarins og Geysis - en að baki Geysi eru Glitnir og Fl Group. Guðbrandur Einarsson, oddvbiti A-listans í Reykjanesbæ telur að bæjarfélagið sé á hálum ís í alltof miklum tengslum við Glitni og FL Group. Hann nefnir að Glitnir sé áskrifandi að fjármögnun allra framkvæmda í Reykjanesbæ, bankinn sé í samkrulli við bæinn í Keilisháskóla og stöðugt sé verið að færa viðskipti bæjarins til Glitnis og tengdra aðila. Bærinn sé að verða ofurseldur bankanum og nú sé Hitaveita Suðurnesja lögð undir. Þar sé verið að gera Suðurnesjamenn að tilraunadýrum í einkavæðingu orkufyrirtækja - þar séu skammtímahagsmunir teknir fram yfir langtíma. Hann telur að réttara hefði verið að stefnumörkun um aðkomu einkafyrirtækja að orkufyrirtækjunum yrði rædd og mótuð áður en þetta skref er stigið.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglinn í Þýskalandi Erlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira