Ofbeldi á heimilum mjög sjaldan kært 2. september 2007 08:45 „
Við vitum að réttarkerfið er þannig að fæst málin enda með dómi,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir hjá Kvennaathvarfinu. Sextán prósent þeirra 300 kvenna sem leituðu til athvarfsins í fyrra vegna heimilisofbeldis kærðu ofbeldið. „Oft kemur upp í umræðunni að það gagnist lítið að kæra,“ segir Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og áætlanadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Við höfum samt engar upplýsingar sem staðfesta að það geti ekki haft eitthvað upp á sig.“ Kærur vegna heimilisofbeldis eða heimilisófriðar eru tæplega 200 talsins það sem af er ári hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynningar vegna slíkra brota hafa hins vegar verið nær átta hundruð, samkvæmt samantekt lögreglu. Samkvæmt tölunum eru ofbeldismenn á heimilum helst karlmenn á aldrinum 35 til 44 ára. Meðalaldurinn er lægri í flestum öðrum flokkum afbrota, að sögn Rannveigar. Í fyrra leituðu rúmlega 300 konur til Kvennaathvarfsins vegna ofbeldis á heimili, þar af 99 í dvöl. Yfir hundrað voru að flýja morðhótanir og töldu sig hafa ástæðu til að óttast um líf sitt. Þriðjungur þeirra sem dvöldu í Kvennaathvarfinu fóru aftur heim í óbreyttar aðstæður. „Sumar konurnar koma oft og með stuttu millibili,“ segir Sigþrúður. „Þetta eru konurnar sem við höfum mesta ástæðu til að ætla að séu beinlínis í hættu heima hjá sér. Þær sem hafa lifað lengi við mjög ljótt ofbeldi stoppa gjarnan stutt og við höfum miklar áhyggjur af þeim.“
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Sjá meira