Innlent

Kjósa um framboð

Auglýsing um fundarboð frá Framtíðarlandinu
Auglýsing um fundarboð frá Framtíðarlandinu

Félagsmenn í Framtíðarlandinu munu kjósa um það á morgun hvort þeir bjóði sig fram til Alþingis eða ekki. Til þess að af framboðinu verði þurfa 66,6% félagsmanna að samþykkja tillögu þess efnis.

Fram kemur í tilkynningu frá Framtíðarlandinu að boðað hafi verið til fundar á Hótel Loftleiðum kl 20.00 á morgun. Þar verða verkefni framtíðarinnar rædd og kosið um framboð.

Þeir sem hafa atkvæðisrétt á fundinum eru félagsmenn sem skráðir voru í félagið fyrir klukkan 12:00 mánudaginn 5. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×