Innlent

Á 158 km hraða á Vesturlandsvegi

MYND/E.Ól
Fimmtíu og níu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 158 km hraða á Vesturlandsvegi. Þá mældist annar á 121km hraða á Sæbraut þar sem er 60 km hámarkshraði. Eftir því sem segir í tilkynningu lögreglunnar voru flestir ökumannanna stöðvaðir á Vesturlandsvegi en allmargir voru líka teknir á Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×