Vilja bjóða grunnskólabörnum frítt inn á skíðasvæði 25. september 2007 17:12 MYND/E.Ól
Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins hefur uppi hugmyndir um að bjóða grunnskólabörnum allra aðildarsveitarfélaga skíðasvæðanna frítt inn á skíðasvæðin frá áramótum og til reynslu til tveggja ára. Þá stefnir stjórnin áfram að undirbúningi snjóframleiðslu í bæði Bláfjöllum og Skálafelli. Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins fundaði í síðustu viku þar sem rætt var um fyrirhugaðan þjónustusamning sem gera á við þau ellefu sveitarfélög sem standa að skíðasvæðunum. Sá samningur á að koma í stað þjónustusamnings sem rennur út um áramót. Að sögn Önnu Kristinsdóttur, formanns stjórnar skíðasvæðanna, eru viðræður við sveitarfélögin þegar hafnar og leggur stjórnin meðal annars upp með að 29 þúsund börn í grunnskólum aðildarsveitarfélaganna fái ókeypis inn á skíðasvæðin frá áramótum 2007-2008 til áramótanna 2009-2010 í tilraunaskyni. Ekkert er fast í hendi hvað þetta varðar enda viðræðum við sveitarfélögin ekki lokið en vonast er til að þeim ljúki á næstu vikum. Ekki hægt að láta tæki upp á milljarða liggja ónotuð Auk þess hefur stjórn skíðasvæðanna í hyggju að halda áfram undirbúningsvinnu við snjóframleiðslu bæði í Bláfjöllum og Skálafelli. Lítið hefur verið hægt að skíða í Bláfjöllum undanfarin ár vegna lítillar snjókomu og þá hefur ekkert verið opið í Skálafelli í tvö ár. „Við viljum koma skíðasvæðunum í þokkalegt stand og forsendan fyrir því er snjóframleiðsla. Það liggja tæki og tól upp á milljarða á svæðunum og það gengur ekki að aðeins sé hægt að nota þau í 30 daga á ári," segir Anna. Stjórn skíðasvæðanna hefur leitað eftir samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur í málinu en Anna segir að leggja verði leiðslur og bora holur í tensgslum við snjóframleiðsluna. Beðið sé eftir niðurstöðum á því hvað framkvæmdirnar kosti. Aðspurð segir Anna að eldra kostnaðarmat frá Orkuveitunni hafi sýnt að framkvæmdir í Skálafelli vegna snjóframleiðslu kosti rúmlega 70 milljónir króna en 180 milljónir í Bláfjöllum, en á síðarnefnda staðnum þurfi að grafa borholur. Anna segir að ef allt gangi að óskum sé áætlað að snjóframleiðsla hefjist á skíðasvæðunum árið 2009. Sem fyrr segir standa yfir viðræður við sveitarfélögin ellefu sem koma að rekstri skíðasvæðanna um nýjan þjónustusamning og ræðst framgangurinn af því hversu mikla fjármuni þau eru tilbúin að leggja í svæðin. Anna segir að hugmyndir séu einnig uppi um að ræða við fyrirtæki um að koma að rekstri svæðanna enda sé um miklar útivistarperlur að ræða.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira