Innlent

Löggudólgur dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi

Tvíttugur karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur í hálfs árs fangelsi sem skilorðsbundið er til þriggja ára fyrir að hafa í tvisvar á rúmum tveimur mánuðum í sumar ráðist á lögreglumenn við skyldustörf.

Fyrra atvikið átti sér stað þann 10. júní við frystihúsið við Hafnargötu á Grenivík. Þar ýtti maðurinn við lögreglumanni þegar sá síðarnefndi hugðist taka skráningarmerki af bifhjóli mannsins. Jafnframt réðst hann á annan lögreglumann og tók hann hálstaki þegar reynt var að handtaka hann. Beit maðurinn annan lögregluþjónanna í handlegginn í átökunum.

Í síðara tilvikinu, sem átti sér stað þann 18. ágúst í Stykkishólmi í sumar, kom hann aftan að lögreglumanni og reif í tækjabelti hans ásamt því að vera með ógnandi framkomu þegar lögreglumaðurinn var að ræða við ökumann bifreiðar við almennt umferðareftirlit. Þá reyndi hann að sparka í andlit annars lögreglumanns þegar hann hugðist ræða við manninn inni í lögreglubifreið eftir handtöku.

Maðurinn viðurkenndit brot sín fyrir dómi en með þeim rauf hann skilorð dóms sem hann hlaut í fyrra. Þar sem maðurinn hafði ekki verið sakfelldur áður fyrir ofbeldisbrot og með tillti til aldurs hans og sakaferils að öðru leyti þótti dómnum rétta að skilorsbinda dóminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×