Skilanefnd lýkur ekki störfum fyrr en á næsta ári 25. september 2007 14:27
Skilanefnd eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga mun ekki ljúka störfum á næstu vikum heldur jafnvel ekki fyrr en á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá formanni skilanefndarinnar, Kristini Hallgrímssyni. Ástæðan er sögð sú að verkefni nefndarinnar hafi verið flóknari en reiknað hafði verið með og hefur skiptafundi sem halda átti með kröfuhöfum á föstudag verið frestað um óákveðinn tíma. Eins og fram kom í fréttum í byrjun sumars eiga tugir þúsunda hluta af um 50 milljarða króna eignum Samvinnutrygginga gt. Það eignuðust þeir með því að eiga í viðskiptum við félagið á tilteknu tímabili. Sérstakri skilanefnd var falið að sjá um fjárhagslegt uppgjör Samvinnutrygginga og verða eignir og skuldir félagsins fluttar í sérstakt hlutafélag, Gift ehf., og verða greiðslur til fólks í formi hlutabréfa í Gift. Rétt á greiðslum eiga þeir einstaklingar sem voru í viðskiptum við Samvinnutryggingar gt á árunum 1987 og 1988 og þeir sem voru með lögboðnar tryggingar húsa hjá Samvinnutryggingum á árunum 1992 og 1993. Eignir þeirra tryggingataka sem hafa látist eða orðið gjaldþrota í gegnum tíðina fara hins vegar í sérstakan sjálfseignarsjóð. Kröfulýsingarfrestur vegna krafna á hendur Samvinnutryggingum rann út 3. september og hefur skilanefnd síðan fjallað um réttindi aðila og úrskurða um umfang þeirra. Fram kemur í tilkynningunni frá skilanefndinni í dag að 51 þúsund manns eigi rétt á greiðslum frá Samvinnutryggingum en þegar félagið hætti tryggingastarfsemi voru eigendur félagsins tæplega 65 þúsund. Þá segir nefndin að verkefnið hafi reynst tímafrekara en upphaflegar áætlanir stóðu til og viðbúið sé að nefndin ljæúki ekki störfum fyrr en á næsta ári. Ætlunin var hins vegar að ljúka málinu á næstu vikum. Tekið er fram að ekki sé nauðsynlegt fyrir eigendur í Samvinnutryggingum að lýsa kröfum sínum fyrir félagið því nefndin hafi upplýsingar um þá tryggingartaka sem eiga að njóta eignarréttinda.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira