Feginn að fá faðernið loksins staðfest Heimir Már Pétursson skrifar 25. september 2007 18:45
Lúðvík Gizurarson er feginn að faðernismáli hans, til staðfestingar á að hann er sonur Hermanns Jónassonar fyrrverandi forsætisráðherra, er lokið. Dóttir hans á síður von á að hann muni eftirleiðis kenna sig við Hermann. Árið 2004 fékk Lúðvík Gizurarson lögmaður úr því skorið að hann væri ekki líffræðilegur sonur Gizurar Bergsteinssonar hæstaréttardómara, sem var eiginmaður móður hans Dagmarar Lúðvíksdóttur. Hann hóf þá að berjast fyrir því að fá viðurkennt að hann væri sonur Hermanns Jónassonar fyrrverandi forsætisráðherra og föður Steingríms Hermannssonar einnig fyrrverandi forsætisráðherra. Málið fór tvívegis fyrir Hæstarétt, fyrst árið 2005 og svo aftur á þessu ári. Í mars úrskurðaði Hæstiréttur að heimilt væri að bera saman fyrirliggjandi lífsýni úr Hermanni og Dagmar og bera þau saman við lífsýni úr Lúðvíki. Niðurstöðurnar voru lagðar fyrir Héraðsdóm sem kvað svo upp úr um það hinn 12. september, að Hermann væri faðir Lúðvíks. Dóra Lúðvíksdóttir, dóttir Lúðvíks, segir að hann sé mjög feginn að loksins sé komin niðurstaða í málið. Það sé honum mikill léttir. Faðir hennar sé mjög þakklátur öllum þeim sem lögðu honum lið í málinu. Þegar dómstólar kveða upp úrskurði sem þennan eru þeir sjálfkrafa sendir þjóðskrá, sem breytir um leið fæðingarskýrslu viðkomandi. Hins vegar þyrfti Lúðvík sjálfur að hafa frumkvæði að því að breyta skráningu sinni í þjóðskrá, þannig að þar yrði hann Hermannsson í stað Gizurarson. Dóttir hans á síður von á að hann geri það. Dóra segir að þegar aldurinn fór að færast yfir föður hennar hafi þessi mál leitað meira á hann. Hann hafi fyrst og fremst viljað koma þessum málum á hreint, þannig að sannleikurinn lægi fyrir.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira