Þeir sem deila um Norðurpólinn gætu lært af landhelgisdeilunni 25. september 2007 18:00 Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra. MYND/Pjetur
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra er staddur í Tromsö í Noregi á ráðstefnu um öryggi og auðlindir á Norðurslóðum. Þar hélt hann erindi þar sem fram kom að lausn deilunnar um yfirráð yfir Norðurpólnum gæti falist í því hvernig Íslendingar leystu landhelgisdeiluna á sínum tíma. Það er norska rannsóknastofnunin um varnarmál sem efnir til ráðstefnunnar með þátttöku ræðumanna frá Noregi, Íslandi, Kanada, Bandaríkjunum, Danmörku og Rússlandi. Á heimsíðu Stjórnarráðsins er greint frá erindi Björns en í því lýsti ráðherrann, hvernig Íslendingar hefðu staðið að lausn deilumála vegna útfærslunnar í 200 mílur og kröfum Íslands utan 200 mílnanna og hvernig staðið væri að því að komast að niðurstöðu um réttmæti þeirra. „Taldi hann að þar mætti finna leiðir til að leysa úr ágreiningi vegna yfirráða við Norðurpólinn, enda skorti ekki alþjóðareglur og samninga um lausn deilumála af þessu tagi," segir í fréttinni. Björn lýsti einnig þróun öryggismála á Íslandi og hvernig aðstæður væru að breytast með fjölgun skipa með olíu- og gas frá Barentshafi til Norður-Ameríku. „Taldi hann að vinna bæri að því að ríki við Norður-Atlantshaf ykju samvinnu við landhelgisgæslu, leit og björgun," segir einnig. Auk Björns voru þeir Valur Ingimundarson, prófessor við Háskóla Íslands, og Ásgrímur L. Ásgrímsson, yfirmaður Vaktstöðvar siglinga hjá landhelgisgæslunni, á meðal fyrirlesara á ráðstefnunni.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira