Foreldrar kaupa málningu til veggjakrots 25. september 2007 13:04 Víða um borgina eru veggir eins og þessi þar sem veggjakrotarar hafa látið til skarar skríða. MYND/Rósa Jóhannsdóttir
Dæmi eru um að foreldrar hafi mafi keypt málningu handa sonum sínum til veggjakrots í borginni. Þetta segja Einar Ásbjörnsson og Ásdís Haraldsdóttir, lögreglumenn í Grafarvogi, í hugvekju á vef lögreglunnar. Þau benda á töluverð umræða hafi verið um veggjakrot að undanförnu enda hafi það verið meira áberandi nú en áður. „Kemur þar margt til, t.d. tilkoma internetsins þar sem þeir sem það stunda geta nú skipst á skoðunum og sýnt myndir af verkum sínum, jafnvel í skjóli nafnleyndar. Höfum við lögreglumenn í Grafarvogi sem víðar þurft að koma að málum þar sem eigendur bygginga og jafnvel bifreiða hafa orðið fyrir skemmdarvörgum sem hafa úðað þessar eigur fólks og valdið á þeim spjöllum sem kallað hafa á fjárútlát eigendanna," segja lögreglumennirnir. Fram kemur í pistli þeirra að gerendurnir séu allt niður í ellefu ára og er foreldrum þeirra sem eru undir 18 ára tilkynnt um athæfið lögum samkvæmt. Foreldrarnir vita sumir af þessu og hafa talið það leyfilegt þar sem um hafi verið að ræða undirgöng, skóla og strætisvagnaskýli í eigu opinberra aðila. „Eru jafnvel dæmi um að foreldrar hafi keypt málningu til þessara verka fyrir barnunga syni sína," segja þau Einar og Ásdís. Vekja þau athygli á því að eignaspjöll af þessum toga sem öðrum séu ekki leyfileg heldur er um saknæmt athæfi að ræða. Öll mannvirki séu eign einhverra, hvort sem um er að ræða opinbera aðila eða einkaaðila, og krefjast viðhalds á kostnað eigendanna. Það ætti að vera öllum ljóst að ekki er undir nokkrum kringumstæðum leyfilegt að valda öðrum tjóni.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira