Innlent

Fjórfalt fleiri ófaglærðir hér en í Danmörku

Mun fleiri ófaglærðir eru á íslenskum vinnumarkaði en í Danmörku. Hátt í fjörutíu prósent Íslendinga á aldrinum 16-64 ára hafa ekki lokið framhaldsnámi á meðan ófaglærðir Danir eru um 10 prósent. Nú er boðið upp á úrræði fyrir þá sem aldrei hafa lokið námi hér á landi.

Iðan fræðslusetur hefur unnið að því um nokkurt skeið að meta námsferil og starfsreynslu iðnaðarmanna sem ekki hafa lokið námi. Iðan veitir þeim námsráðgjöf og aðstoð við að hefja nám aftur að kostnaðarlausu.

Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs, segir að um 40 prósent Íslendinga á aldrinum 16-64 séu ófaglærðir en til samanburðar í Danmörku séu ófaglærðir einungis um 10 prósent. Danir stefni að því á næstu árum að lækka þetta hlutfall niður í fimm prósent. Hún segir brottfall í iðn-og starfsnámsgreinum í kringum 20 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×