Innlent

Alvarlegt bílslys í Hrútafirði

Tveir karlmenn slösuðust, annar alvarlega, þegar bíll valt í Hrútafirði norðan við Borðeyri rétt fyrir klukkan fimm í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og flutti þá slösuðu til Reykjavíkur. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi er mikil hálka á veginum þar sem slysið varð. Bifreiðin er gjörónýt. Að sögn læknis á slysadeild Landspítalans í Fossvogi er líðan mannanna eftir atvikum góð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×