Sköðuðust ekki í eiturefnaleka í Írafossi 23. nóvember 2007 12:07
Öll sex manna áhöfn flutningaskipsins Írafoss var flutt til skoðunar á eiturefnadeild Landsspítalans í gærkvöldi, eftir að eitruð efni bárust inn í vistarverur skipverja. Engin skaðaðist varanlega. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með töluverðan viðbúnað eftir að beiðni um aðstoð barst á tíunda tímanum vegna eiturefnaleka í lestum skipsins þar sem það lá í Sundahöfn. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var um að ræða gastegund sem notuð er til þess að drepa skordýr í lestum hveitiflutningaskipa. Vindur stóð þannig í höfninni í gærkvöldi að eiturefnið barst inn í vélarrúm og vistarverur skipverja og fór viðvörunarbúnaður í gang af þeim sökum. Slökkvililið sendi reykkafara inn í skipið til þess að kanna aðstæður og voru skipverjarnir allir fluttir á eiturefnadeild slysadeildar til rannsóknar. Engin reyndist hafa orðið fyrir alvarlegri eitrun og voru fjórir undirmenn sendir á hótel þar sem þeir gistu í nótt en tveir yfirmenn vöktuðu skipið. Allt er nú komið í eðlilegt horf um borð en skipið, sem er í eigu Eimskips, er skráð í Saint Jones í Karíbahafinu og er áhöfnin öll erlend.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Sjá meira