Salan á hlut Reykjanesbæjar í HS kærð til Umboðsmanns Alþingis 23. nóvember 2007 09:36
Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi A-listans í Reykjanesbæ hefur leitað álits umboðsmanns alþingis á vinnubrögðum Árna Sigfússonar bæjarstjóra og meirihluta sjálfstæðismanna við sölu hlutar í Hitaveitu Suðurnesja. Fjallað er um málið á vefsíðu Samfylkingarinnar og þar segir að í bréfi til umboðsmanns rekur Guðbrandur að sala eignarhlutar bæjarins í HS, sem nam 5%, var ekki tekinn fyrir í bæjarráði eða bæjarstjórn þegar salan fór fram, og að sölusamningurinn var ekki undirritaður með fyrirvara um samþykki bæjarráðs eða -stjórnar. Samningurinn hafi fyrst verið lagður fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar 15. nóvember, fjórum mánuðum eftir að hann var gerður og þá að kröfu bæjarfulltrúa af A-lista. Þegar bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ fengu að kröfu A-listamanna afhent öll gögn um Hitaveitu Suðurnesja í fórum bæjarfélagsins kom í ljós að í sölusamningnum við Orkuveitu Reykjavíkur voru engir fyrirvarar um samþykki kjörinna fulltrúa. Samningurinn hafði þá hvorki verið lagður fyrir í bæjarráði né bæjarstjórn. Guðbrandur skýrir umboðsmanni alþingis frá því að þegar spurt var um ástæður þess að samningurinn kom aldrei til afgreiðslu hafi svörin verið þau að hann grundvallaðist á viljayfirlýsingu eiganda Hitaveitu Suðurnesja sem var lögð fyrir bæjarráð 12. júlí og samþykkt þar með atkvæðum Sjálfstæðisflokksins gegn atkvæðum borgarfulltrúa af A-lista. Guðbrandur hafi gert athugasemd við þessa málsmeðferð á bæjarstjórnarfundi 6. nóvember þar sem í viljayfirlýsingunni sé þess hvergi getið að Reykjanesbær selji OR hlut sinn. Því hefði átt að undirrita þennan samning með fyrirvara um samþykki bæjarráðs og taka hann síðan þar til afgreiðslu. „Ég tel ljóst af ofangreindu að málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hafi verið brotnar," segir Guðbrandur í bréfi sínu til umboðsmanns og biður um álit frá embættinu á þessum gjörningi.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Innlent Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira