Ver barnaníðinga en sætir ákæru sjálfur um kynferðisafbrot 18. september 2007 18:45
Lögmaður sem er ákærður um kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum hefur tekið að sér að verja meinta barnaníðinga þótt hann sæti sjálfur rannsókn vegna meintra kynferðisafbrota. Í Kompás í kvöld kemur fram að snemma á þessu ári hafi tæplega sextugur lögmaður verið ákærður fyrir kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum, fjórtán og fimmtán ára gömlum. Samkvæmt ákæru notaði lögmaðurinn Netið við að ná til stúlknanna þar sem hann sagðist vera sautján ára unglingspiltur. Lögmaðurinn hefur í rúm tvö ár sætt rannsókn vegna þessara meintu brota en hefur haldið fram sakleysi sínu og haldið fullum réttindum sem lögmaður. Sem verjandi meintra barnaníðinga hefur lögmaðurinn haft aðgang að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum um börn og verið við skýrslutöku yfir þeim í Barnahúsi segir í Kompási. Að mati Stígamóta er þessi staða ótæk en ekkert einsdæmi. Rúna Jónsdóttir talsmaður samtakana segir erfitt að hrófla við mönnum í áhrifa- og valdastöðum þótt þeir séu ákærðir fyrir kynferðisbrot. Helgi Jóhannesson, formaður Lögmannafélags Íslands, telur ekki auðsótt að takmarka umsvif lögmanna sem eru ákærðir eða áskaðir um brot á lögum. Fjallað verður nánar um þetta mál í Kompás á Stöð 2 í kvöld klukkan 21,45.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira