Íslendingar sitja lengi á skólabekk Þórir Guðmundsson skrifar 18. september 2007 18:42
Ástralir og Íslendingar sitja lengst allra á skólabekk og engin þjóð ver jafn miklu af þjóðartekjum í að koma börnunum í gegnum grunn- og framhaldsskóla en Íslendingar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD. Þeim fjölgar þeim stöðugt sem fara menntaveginn á Íslandi. Árið 2000 var hlutfall fólks á dæmigerðum útskriftaraldri sem í raun brautskráðist úr háskóla rúm þrjátíu prósent manna en árið 2005 voru það 56 prósent. Einungis Ástralir útskrifa fleiri háskólanema. Íslendingar verja líka talsvert meira fé til að mennta börnin sín en flestar aðrar aðildarþjóðir Efnahags- og framfarastofnunarinnar, eða OECD. Þannig nota Íslendingar 5,4 prósent af vergri landsframleiðslu til að koma börnum í gegnum grunn- og framhaldsskóla en sú þjóð sem næst kemur er Nýjasjáland, með fimm prósent. Þetta skýrist að einhverju leiti af því að skólaganga hér á landi í grunn- og framhaldsskóla er sú lengsta innan OECD, eða 14 ár. Hins vegar eru Íslendingar undir meðaltali þegar kemur að háskólunum. Miðað við verga landsframleiðslu verja Íslendingar minna fé til háskólanna en OECD löndin gera að meðaltali, og eru þá tekin með bæði opinber útgjöld og útgjöld einkaaðila. Varðandi þá sem klára framhaldsskólann eru góðar fréttir og slæmar. Árið 2000 útskrifuðust 67 prósent unglinga úr framhaldsskóla en það hlutfall er komið upp í 80 prósent. Slæmu fréttirnar eru þær að mikill munur er á kynjunum. Miklu fleiri stúlkur útskrifast úr framhaldsskóla, eða 92 prósent þeirra, en einungis 68 prósent drengja.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira