Lífið

Umboðsskrifstofa gefst upp á Britney

Ástandið versnar og versnar hjá Britney
Ástandið versnar og versnar hjá Britney MYND/Getty

Umboðsskrifstofa Britney Spears, The Firm, hefur bundið enda á samstarf sitt við söngkonuna einungis mánuði eftir að það hófst. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir: "Britney hefur mikla hæfileika en núverandi kringumstæður koma í veg fyrir að við getum unnið vinnuna okkar"

Britney valdi umboðsskrifstofuna til að styðja við útgáfu á nýrri breiðskífu sem væntanleg er 13. nóvember næstkomandi.

Þá sagði lögræðingur hennar, Laura Wasser, starfi sínu lausu í gær en hún hefur unnið með Britney í forræðisdeilu milli hennar og Kevin's Federline. Britney hefur ráðið nýjan lögfræðing og segir Wasser hana í góðum höndum. ´

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.