SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fá ekki að sameinast 18. september 2007 10:49 Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftilitsins.
Samkeppniseftilitið hefur úrskurðað að hópferðafyrirtækin SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fái ekki að sameinast. Í lok marsmánaðar síðastliðinn keypti eignarhaldsfélagið Reynimelur ehf., sem er í eigu SBA-Norðurleiðar og Hagvagna fyrirtækið Kynnisferðir ehf. af FL Group. Reynimelur er félag sem stofnað var vegna þessara kaupa á Kynnisferðum af þessum fyrirtækjum. Viðskiptin voru tilkynnt til Samkeppniseftirlitsins í maímánuði sem samruni. „Kynnisferðir, SBA-Norðurleið og Hagvagnar/Hópbílar hafa um margra ára skeið verið umfangsmikil í fólksflutningum hér á landi, svo sem á sviði hópferða og svokallaðra dagsferða. Auk þess hafa Kynnisferðir verið lang umsvifamesta fyrirtæki landsins í sérleyfisakstri, til dæmis á leiðinni milli Reykjavíkur og Leifsstöðvar. Þá stunda félögin akstur fyrir sveitarfélög á strætisvagnaleiðum. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að hefði samruninn verið látinn óátalinn hefði orðið til markaðsráðandi staða á þeim markaði sem þessi fyrirtæki starfa á, en samanlögð markaðshlutdeild þeirra er tæplega 60%. Til samanburðar nemur hlutdeild annarra einstakra keppinauta mest 5-10% af markaðnum," segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu Samkeppniseftirlitið telur að samruninn hindri virka samkeppni á umræddum markaði fyrir fólksflutninga og vinni því gegn markmiði samkeppnislaga. Því hefur Samkeppniseftirlitið ógilt samruna félaganna.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Fleiri fréttir Fundað um Múlaborg og eldislöxum varist Braust inn á flugvallarsvæðið Ekkert bendi til að brotið hafi verið á fleiri börnum Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ „Það bjó enginn í húsinu“ Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Vísað ölvuðum frá borði á leið frá Keflavík Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Sjá meira