Innlent

Þorsteinn Pálsson leggur til að forsetinn fari með æðstu stjórn Alþingis

Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra leggur til í leiðara blaðsins í dag að forseta Íslands verði falin æðsta stjórn Alþingis með virkum hætti til viðbótar því hlutverki sem hann hefur nú. Stjórn þingsins sé nú að öllu jöfnu í höndum meirihluta framkvæmdavaldsins. Í þeirri skipan mála sé fólgið ákveðið ójafnvægi milli stjórnar og stjórnarandstöðu.

Tilefni leiðarans er málþófið um Ríkisútvarpsfrumvarpið. Þorsteinn segir að allir flokkar eiga sér einhverja sögu um pólitískan vopnaburð af því tagi. Fáir eigi því innistæðu til hneykslunar. Segir Þorsteinn gild rök fyrir því að takmarka ræðutíma þingmanna en á hinn bóginn þurfi að styrkja stöðu stjórnarandstöðunnar til þess að framfylgja því stjórnskipulega hlutverki að veita framkvæmdavaldinu aðhald. Það sé lýðræðinu nauðsynlegt.

---

Leiðari Þorsteins Pálssonar í Fréttablaðinu í heild



Fleiri fréttir

Sjá meira


×