Innlent

Sakar bæjarfulltrúa á Akureyri um heigulshátt

MYND/GVA

Félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, Vörður, sakar bæjarfulltrúa flokksins um heigulshátt í ályktun sem var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær. Hin þungu orð eru vegna nýs hlutverks Þóru Ákadóttur í félagsmálaráði Akureyrarbæjar.

Með skipun hennar, segir í ályktuninni, er litið framhjá varamönnum og ungliðahreyfingunni enn og aftur. Það hljóti að teljast heigulsháttur þegar nýjar og kraftmiklar hugmyndir sem fylgi ungu og óreyndu fólki séu hundsaðar. Þá lýsir félagið vonbrigðum sínum með starfshætti flokksins við skipun í ráð og nefndir, þar sem ítrekað sé litið framhjá ungliðahreyfingunni og flokksstarf Varðar vanvirt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×