Innlent

Keyrt á stúlku á Akureyri í nótt

MYND/Kristján Kristjánsson

Mikil ölvun og erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt. Keyrt var á stúlku innan við tvítugt á Eimskipafélagsplaninu austast í Strandgötu bæjarins.

Tilkynnt hafði verið um hópslagsmál á svæðinu í nótt og þegar lögreglan kom á vettvang var þar hópur fólks um og yfir tvítugt og voru nokkrir með barefli á lofti.

Hópurinn var leystur upp og þegar einn steig upp í bíl og ætlaði að yfirgefa staðinn keyrði viðkomandi á stúlkuna. Stúlkan er ekki alvarlega slösuð en hlaut eymsli á fæti og baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×