Herréttur hafinn í morðmálinu í Keflavíkurstöðinni 26. apríl 2007 10:30 MYND/Teitur
Réttarhöld yfir meintum morðingja flugliðans Ashley Turner, sem myrt var í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli í ágúst 2005, eru hafin. Herréttarhöldin fara fram í flugstöð Bandaríska flughersins í Washington sökum þess að Keflavíkurstöðinni hefur verið lokað. Verjandi mannsins segir að yfirvöld hafi verið of fljót á sér í málinu og að þeim hafi láðst að rannsaka annan mann sem hafði ástæðu til að vinna Turner mein. Íslensk kærasta mannsins neitar að mæta fyrir réttinn. Hinn ákærði, Calvin E. Hill, gæti átt yfir höfði sér dauðadóm verði hann fundinn sekur. Verjendur segjast fullvissir um að þeir séu með rétta manninn fyrir dómi og benda á að blóð úr fórnarlambinu hafi fundist á skóm ákærða. Auk þess segja þeir að klefafélagi Hill í fangelsi hafi vitnað um að Hill hafi viðurkennt fyrir sér að hann hafi myrt Turner. Hin tvítuga Ashley Turner var barin og stungin til bana í setustofu í svefnskála á Keflavíkurstöðinni 14. ágúst 2005. Hún átti að mæta fyrir rétt til að vitna í máli sem varðaði þjófnað sem Hill var sakaður um. Verjandi Hill benti hins vega á fyrir réttinum að kærasti Turner, Ronald Ellis, hefði líka verið kallaður fyrir rétt í sama mánuði fyrir eiturlyfjaneyslu, og að Turner hafi verið kunnugt um neyslu hans. Verjandinn segir ennfremur að sést hafi til þeirra Turner og Ellis í heiftúðugu rifrildi á skemmtistað sem endaði með því að Turner rauk á dyr. Saksóknarinn tekur ekki mikið mark á málatilbúnaði verjandans og bendir á að fjarvistarsönnun Hill sé ekki nægilega góð. Hann segist hafa verið í herbergi sínu með íslenskri kærustu sinni og að hann hafi aðeins brugðið sér frá í stutta stund. Kærasta mannsins hefur hins vegar sagt fyrir rétti að hann hafi verið fjarverandi í klukkutíma og að þegar hann kom til baka hafi hann verið löðursveittur og farið strax að þvo þvott. Kærasta Hill neitar að mæta fyrir réttinn í Bandaríkjunum en notast verður við fyrri vitnisburð hennar.
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira