Leno gerir grín að Lindsay 27. júlí 2007 05:00 Íslandsvinurinn var fenginn til þess að leika Lohan í þætti Jay Leno en leikkonan afboðaði eftir að hafa verið tekin fyrir akstur undir áhrifum í annað sinn.
Leikkonan Lindsay Lohan var tekin öðru sinni fyrir ölvunarakstur í vikunni líkt og fram kom í Fréttablaðinu. Handtakan kom sér illa fyrir fleiri en Lindsay því þáttastjórnandinn Jay Leno hafði bókað hana í þáttinn sinn sama kvöld. Þar var henni ætlað að kynna nýja mynd sína I Know Who Killed Me. Lindsay afboðaði og Leno þurfti að finna staðgengil með skömmum fyrirvara. Leikarinn Rob Schneider, sem lék meðal annars í myndunum um karlhóruna Deuce Bigalow og The Hot Chick, var fenginn til þess að hlaupa í skarðið. Hann mætti klæddur sem Lindsay í svörtum kjól og með ljósa hárkollu. Punkturinn yfir i-ið var ökklaband líkt og það sem leikkonan hefur þurft að ganga með undanfarið, en því er ætlað að skynja hvort hún neytir áfengis eða ekki. Lindsay Lohan hefur áður komið í þáttinn til Leno. Það aftraði honum þó ekki frá því að gera stólpagrín að því að leikkonan hefði verið handtekin og í framhaldinu þurft að afboða komu sína í þáttinn á þriðjudagskvöldið. Leno gerði stólpagrín að öllu saman í upphafi þáttar síns þar sem hann sagði meðal annars að það hefði greinilega verið misskilningur að hans helstu keppinautar væru Nightline og Letterman. Samkeppnin væri greinilega Cops og America"s Most Wanted.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira