Klerkur kannast ekki við klámbræður 21. febrúar 2007 08:00 Gísli Ásgeirsson. Þýðandinn og faðir hans hafa komist að ættartengslum Bólu-Hjálmars og klámbræðranna Scott og Grant Hjorleifsona.
Þýðandinn Gísli Ásgeirsson og karl faðir hans hafa grafið upp ansi merkileg ættartengsl bræðranna og Vestur-Íslendinganna Scott og Grant Hjorleifson en nafn þeirra hefur borið á góma í tengslum við klámráðstefnuna sem halda á hér um miðjan mars. Bræðurnir eru nefnilega komnir af skáldinu fræga, Bólu-Hjálmari, sem þýðir að sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur er meðal ættmenna þeirra. „Þetta var nú aðallega pabbi sem grúskaði í þessu,“ útskýrir Gísli og vill meina að séra Hjálmar eigi fátt sameiginlegt með þessum fjarskyldu frændum sínum – Hjálmar sé drengur góður, mikill íslenskumaður og gott skáld. „Ef Scott og Grant hafa einhvern tímann ort eitthvað þá er það bara klám. Og það er kannski ósanngjarnt að bendla Hjálmar við þessa menn en hann er bara frægasta skyldmennið í ættinni,“ segir Gísli. Gísli bendir jafnframt á að gaman sé að velta fyrir sér merkingu orðsins klám í íslenskri tungu. Klám sé eitthvað sem er bæði hrjúft, gróft og erfitt en til gamans má geta að vinsæl þrekraun fyrir göngufólk á hinni víðfrægu gönguleið, Laugaveginum, heitir einmitt Klámbrekka. Sr. Hjálmar kom af fjöllum þegar Fréttablaðið bar þessi ættartengsl undir hann. „Ég á ættingja í Vesturheimi eins og flestir en kann engin deili á þessum mönnum,“ segir Hjálmar sem kvaðst hafa lítinn sem engan áhuga á umræðu um klámið og ráðstefnuna. „Ég kann ekki við þegar menn þykjast ekkert vera að velta sér upp úr klámi en eru samt sem áður að því.“
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Sjá meira