Innlent

Ungir jafnaðarmenn gagnrýna pólitískar skipanir Sjálfstæðisflokks

Ungir jafnaðarmenn mótmæla harðlega pólitískum skipunum Sjálfstæðisflokksins í embætti dómara á Íslandi. Í þeim felst alvarleg valdníðsla og aðför að þeirri kröfu sem gerð er í stjórnarskrá lýðveldisins, um óháða og óhlutdræga dómstóla.

 

Í yfirlýsingu sem Ungir jafnaðarmenn hafa sent frá sér segir að nú síðast hefur settur dómsmálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins, sniðgengið álit sérfræðinganefndar sem metur hæfi umsækjenda um embætti héraðsdómara. Fyrir þessu eru ekki fordæmi.

"Svo vill til að sá sem stöðuna fékk var til langs tíma pólitískur aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og er sonur (Davíðs Oddsonar) fyrrum forsætisráðherra. Þrír umsækjendur höfðu verið metnir hæfari en hann. Eins og þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur réttilega bent á, skortir mjög á að rökstuðningur (Árna Mathiesen) setts dómsmálaráðherra, sé trúverðugur varðandi þetta frávik..." segir m.a. í yfirlýsingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×