Fjöldi sakamála óleyst 29. desember 2007 19:11
Fjöldi alvarlegra sakamála sem komu upp á árinu eru enn óleyst eða hafa ekki enn verið send saksóknara til meðferðar. Þeirra á meðal eru gróf nauðgunarmál í Reykjavík og á Selfossi. Í lok síðasta árs og í byrjun þessa kærðu átta konur Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrgisins, fyrir kynferðislega misbeitingu. Á sama tíma hóf efnahagsbrotadeild lögreglunnar rannsókn á meintu fjármálamisferli hans en í fréttaskýringaþættinum Kompási sem sýndur var skömmu áður var Guðmundur sakaður um að draga að sér styrktarfé. Þá var hann einnig sakaður um misnota sér traust kvenna sem leituðu sér meðferðar í Byrginu. Enn hefur engin ákæra verið gefin út á hendur Guðmundi. Í apríl á þessu ári var framkvæmdarstjóra verðbréfasjóðs sparisjóðanna vikið úr starfi og hann kærður fyrir bókhaldssvik með útgáfu um 13 milljarða ábyrgðar. Málið er enn í rannsókn. Í júlílok var maður myrtur á Sæbraut. Banamaðurinn hafði keypt skotvopnið í verslun í Reykjavík án þess að hafa til þess tilskilin leyfi en hann svipti sig lífi eftir voðaverkið. Lögreglan hefur lítið annað vilja segja um ástæðu þess að maðurinn gat keypt skotvopnið í nafni annars manns, annað en að ákvörðun um hvort eitthvað verði gert til að slíkt hendi ekki aftur verði tekin síðar. Að því er fréttastofa kemst næst liggur sú ákvörðun ekki fyrir. Þá var karlmanni ráðinn bani við Hringbraut í byrjun september. Sá sem grunaður er um verknaðinn situr í gæsluvarðhaldi en rannsókn málsins ólokið. Í október voru þrír menn handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu í heimahúsi á Selfossi. Rannsókn málsins stendur enn yfir. Í nóvember voru tveir menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunaðir um að hafa nauðgað konu í húsasundi við Laugarveg. Ákæru í málinu er ekki að vænta fyrr en í janúarlok. Þá er einn maður í farbanni grunaður um að hafa í lok nóvember ekið á fjögurra ára gamlan dreng með þeim afleiðingum að hann lést. Málið hefur enn ekki verið sent til saksóknara.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira