Lífið

Britney Spears í molum

Britney sést hér kela við karlmann. Sama kvöld gerðist hún ansi vinveitt við Shannon Funk fyrrverandi aðstoðarkonu sína
Britney sést hér kela við karlmann. Sama kvöld gerðist hún ansi vinveitt við Shannon Funk fyrrverandi aðstoðarkonu sína MYND/365

Britney Spears á ekki sjö dagana sæla. Hún sást koma hágrátandi út frá lögfræðingi sínum eftir að hafa rætt um æ harðnandi forræðisdeilu sína og Kevins Federline. Samkvæmt Daily mail hefur hann farið fram á fullt forræði yfir börnum þeirra þeim Sean Preston, 22 mánaða og Jayden James, 10 mánaða.

Skilnaður þeirra Spears og Federline gekk endanlega í gegn fyrir tveimur vikum og þá var gert samkomulag um sameiginlegt forræði. Í kjölfar frétta af sífellt óstöðugari hegðun söngkonunnar ákvað Federline að fara í hart. Nýjasta uppákoman þar sem sást til Britney í ástaratlotum við fyrrverandi aðstoðarkonu sína Shannon Funk í sundlaug setti enn frekar strik í reikninginn. Federline telur Spears vera að tefla börnum þeirra í óþarfa hættu með háttarlagi sínu.

Federline og lögmaður hans Mark Vincent Kaplan hafa fengið vitnisburð frá þremur fyrrum starfsmönnum Spears, tveimur lífvörðum og einni barnfóstru. Þau segja Britney slæma móður, að hún öskri á drengina, segi þeim að þeir hafi verið mistök, drekki sig fulla fyrir framan þá, gefi þeim kaffi og láti þá vera með óhreinar bleyjur í lengri tíma.

Barfóstran sagði frá því að Britney hafi boðið henni að sofa upp í rúmi hjá sér og Sean Preston. Eins hafa fregnir borist af miklu óöryggi söngkonunnar og hafa fyrrverandi starfsmenn sagt að hún gangi nakin um húsið og spyrji aðstoðarfólk hvernig hún líti út og hvort hún sé sexí. Skemmst er að minnast þess að Britney fór í meðferð fyrr á þessu ári sem endaði með því að hún rakaði af sér hárið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.