Hans J. Wegner er látinn 7. febrúar 2007 09:00 Nautið eftir Hans J. Wegner
Einn virtasti húsgagnahönnuður Danmerkur, Hans J. Wegner, er látinn, 92 ára að aldri. Wegner var eitt af stóru nöfnunum í danskri húsgagnahönnun og var einkum þekktur fyrir stóla sína sem voru frábærlega byggðir og jafnfram byltingarkenndir í útliti. Hann var af iðnaðarmönnum kominn, fæddist í Tønder 2. apríl 1914, sonur skósmiðs. Hann fór í snikkaranám fjórtán ára gamall en komst síðar til náms í Kunsthåndværkerskolen í Höfn. Ásamt þeim Børge Mogensen og Finn Juhl stóð hann á bak við gullöldina í danskri húsgagnahönnun. Frá 1940 vann Wegner með sama smíðafyrirtækinu, Johannes Hansen, og þar voru unnir þekktustu stólar hans, Stóllinn, Jakkahvílan, Páfuglastóllinn, Nautsstóllinn og Y-stóllinn. Talið er að miklu hafi munað um útrás danskrar hönnunar þegar þeir Kennedy og Nixon háðu sjónvarpseinvígið fræga. Þá voru stólar eftir Wegner valdir undir þá sem kallaðir voru Runde, en fengu eftir það nafnið Stóllinn. Það opnaði danskri húsgagnaframleiðslu veg inn á stóran markað. Húsgögn hans eru mörg til hér á landi, sum afargömul eintök, sem þessi misserin fara á háu verði á uppboðum í heimalandi höfundarins.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira