Alveg eins hægt að stilla upp símastaurum í bæjarstjórn 25. apríl 2007 18:45
Helsti eðalkrati landsins, sá sem á einkanúmerið "krati", hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Þetta er Árni Hjörleifsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Hafnarfirði, en hann vill með úrsögn sinni lýsa andúð á skoðanaleysi bæjarfulltrúa flokksins í álverskosningunni og óheilindum þeirra í garð fyrirtækisins.Það er sagt að þeir gerist ekki meiri eðalkratar en þeir sem eru í Hafnarfirði og sá sem á einkaanúmerið "krati" hefur í áratugi verið kallaður Árni krati. Hann sat í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir Alþýðuflokkinn á árunum 1990 til 1998, var formaður bæði skipulagsnefndar og skólanefndar og náinn samstarfsmaður Guðmundar Árna Stefánssonar. Hann hefur nú sagt sig úr Samfylkingunni.Árni segir að álverið hafi í 40 ár verið eitt besta fyrirtæki bæjarins og greitt góð laun en nú séu bæjarfulltrúar flokksins að stuðla að því að það hrökklist úr bænum. Hann segir þá hafa sýnt óheilindi í garð Alcan. Þeir hafi í mörg ár undirbúið stækkun þess og dregið fyrirtækið á asnaeyrunum en síðan hent málinu í kosningar. Slíkt sé ekki heiðarleg framkoma. Ef bæjarfulltrúar geti ekki fylgt málinu eftir og treysti sér ekki til að hafa skoðanir sé alveg eins hægt að stilla upp símastaurum í bæjarstjórn.Þrátt fyrir úrsögn úr Samfylkingunni segist hann alltaf verða krati en segist ekki vita hvaða flokk hann að kýs í þingkosningunum í vor og sennilega muni hann ekki ákveða sig fyrr en á síðustu stundu í kjörklefanum. Þegar nánar er gengið á Árna og hann spurður hvað líklegast sé að hann kjósi svarar hann Samfylkinguna, enda sé ekki verið að kjósa í bæjarstjórn heldur til þings.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fleiri fréttir Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Sjá meira