Ekki stendur til að einkavæða Orkuveituna 30. ágúst 2007 13:36 MYND/Valgarður
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ítrekar það ekki sé ætlunin að einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur en tillaga um hlutafélagavæðingu fyrirtækisins er til umræðu á stjórnarfundi Orkuveitunnar sem nú stendur yfir. Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir, fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna í stjórn Orkuveitunnar, gagnrýndu fyrr í dag að tillagan yrði tekin fyrir án umræðu og sögðu hana upptakt að einkavæðingarferli Orkuveitunnar. Vilhjálmur sagði hins vegar í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag að þrátt fyrir að Orkuveitan yrði hlutafélagavædd yrði hún áfram í eigu sveitarfélaganna sem hana eiga nú, Reykjavíkur, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. „(Þettta var) nánast komið á lokastig hjá R-listanum að breyta þessu í hlutafélag í eigu þessara sveitarfélaga. Það er sérstaklega tekið fram að það verði engin breyting á eingarhaldinu og alls ekki að stefna að því selja þetta því ég er algjörlega andsnúinn því," segir Vilhjálmur. „Þetta (hlutafélagaformið) er hins vegar talið miklu heppilegra rekstrarform og það eru til dæmis ýmis orkufyrirtæki sem eru hf. eða ohf. og það er eðlilegt að við séum að reka þetta fyrirtæki okkar miðað við svipaðar forsendur og svipaðar aðstæður. Það stendur ekki til að einkavæða Orkuveituna og það verður ekki gert alla vega meðan ég er borgarstjóri," segir Vilhjálmur. Aðspurður segir Vilhjálmur að verkefni Orkuveitunnar verði áfram fyrst og fremst að útvega viðskiptavinum sínum hér á landi heitt og kalt vatn og rafmagn en fyrirtækið hafi einnig látið að sér kveða í útrás í gegnum félagið ENEX. „Við teljum okkur hafa mikla reynslu og þekkingu og það er mikið leitað til okkar frá erlendum aðilum," segir Vilhjálmur.
Mest lesið „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Innlent Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Erlent Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Innlent Miðflokki fatast flugið Innlent Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Fleiri fréttir Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Miðflokki fatast flugið Vökuliðar frestuðu afgreiðslu á vantrauststillögu Samgöngustofa ógildir skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum Tímamót og glæný könnun Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Fjögur ár frá innrás Rússa og milljarðar bætast í ríkiskassann Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Lausir endar í Edition-málinu „Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum áföllum“ Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Biðja fólk um að fóðra ekki fuglana í kirkjugörðunum Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Stór hluti hærra skrásetningargjalds fari í að borga veitingareikning HÍ Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið „Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Vopnin ekki til að drepa, heldur verja Sjá meira